| Glacier Lagoon
in Iceland Smarabraut 20 IS-780 Hofn Iceland Tel. +354 478 2222 and 899 5920 Local homepage |
|
|
Jökulsárlón á Breiðamerkursandi Fyrir 1950 rann Jökulsá á Breiðamerkursandi beint undan jökli u.þ.b. 1½ km til sjávar. Síðan hefur jökullinn hörfað og sístækkandi lón myndast. Meðalrennsli árinnar er 250-300 m³/sek. og stórir ísjakar brotna af jökuljaðrinum, sem er á floti í vatni. Lónið er feikidjúpt, a.m.k. 190 m. Áin styttist stöðugt vegna brimrofs og árið 1998 var hún varla meira en 500 m. Yfirborð lónsins hefur lækkað stöðugt, þannig að nú gætir sjávarfalla í því. Það þýðir einfaldlega, að hlýrra vatn streymir inn í það á flóði og ísinn bráðnar mun hraðar en fyrrum. Bæði loðna og síld ganga inn í lónið og selurinn eltir ætið. Víða má sjá æðarfugl syndandi milli jakanna. Það er ógleymanlegt að sigla með bátunum um lónið og virða fyrir sér litaskipti íssins og ótrúlegar höggmyndir náttúrunnar. Ferðir eru á hverjum degi yfir sumarið Við opnum 15. maí og erum með opið alla daga til 15. september. Í maí og september er opið daglega frá kl. 10-17 alla daga og í júní, júlí og ágúst er opið daglega frá kl. 9 til 19. Yfir háannatíma það er (jún,júl,ágú.) erum við með margar ferðir á dag, að minnsta kosti á hálftíma fresti. Hver sigling tekur um 30-40. min. Við tryggjum öryggi farþegana með því að hafa vel þjálfað starfsfólk. Það hafa aldrei orðið óhöpp við siglingu með farþega við lónið í þau 15. ár sem siglt hefur verið um lónið. Þeir sem stjórna bátunum hafa mikla reynslu og þekkja lónið mjög vel og vita nákvæmlega hvar er öruggast að sigla bátunum um lónið. Hverjum bát fylgir einnig Zodiac öryggisbátur og siglir hann með. Við mælum ekki með því að fólk sé að koma með sína eigin báta og sigli þeim um lónið því ísjakarnir eru fljótandi um og velta oft eða brotnar úr þeim og er þá ekki að spyrja að leikslokum ef einhver lendir við slíkan klaka. Þeir sem sigla á eigin bátum er þar algerlega á eigin ábyrgð. Um borð í bátnum er einnig leiðsögumaður frá okkur og er hans hlutverk líka að gæta öryggis farþeganna, þegar komið er út á lónið þá stoppar báturinn og leiðsögum fræðir farþegana um lónið, ísinn og nágrennið, hann svarar einnig þeim spurningum sem fólk vill spyrja um. |
![]()
|
· Agriculture
· Commerce & Services ·
Culture & Arts ·
Education ·
Entertainment ·
· Fisheries ·
Health ·
Industries ·
News & Media ·
Public Authorities ·
· Recreation & Sports ·
Shopping ·
Shipping & Transport ·
Tourism ·
· Home · Search · About Randburg · What's New · Sign Up! ·
Copyright © randburg.com. All rights reserved.