UMHVERFISVÆNN FERÐASKIPULEGGJANDI ...hjá okkur eru allar ferðir ÆVINTÝRI
Myndir frá Hellnum og Þjóðgarðinum Snæfellsjökli
Við leggjum aðaláherslu á NÁTTÚRUNA, SÖGUNA og DULMAGNIÐ Undir Jökli og drögum fram alla þá dulúð sem ríkt hefur yfir svæðinu frá því Bárður Snæfellsás nam hér land. Jökullinn er af mörgum talinn vera ein af sjö helstu orkustöðvum jarðar og tvær sterkar orkulínur liggja um landið austan og vestan Hellna.
Gönguferð um Hellnar með staðarleiðsögumanni. Farið um hella, orkulínur og álfabyggðir og sagan fyrr og nú fléttuð inn í sterka og stórbrotna náttúru. Lágmark 3 – hámark 30 manns. Tími: u.þ.b. 1 ½ - 2 tímar. Nánari upplýsingar: gudrun@hellnar.is eða 435-6810
Gönguferð eftir Neðstu-götu frá Hellnum til Arnarstapa meðfram stórbrotinni friðlýstri strandlengju. Sagan er fléttuð inn í ferð um orkulínur og álfabyggðir, framhjá Gatkletti og Pumpunum, endað við höfnina á Arnarstapa. Akstur til baka á upphafsreit. Lágmark 3 – hámark 30 manns. Tími: 2 ½ - 3 tímar. Nánari upplýsingar: gudrun@hellnar.is eða 435-6810
DAGSFERÐ UM ÞJÓÐGARÐINN alla daga vikunnar eftir samkomulagi – brottför frá Brekkubæ á Hellnum. Hægt að sækja gesti á aðra gististaði í nágrenninu. Lágmark 4 – hámark 9 manns. Hádegisverður innifalinn (nesti). Farið á alla helstu staði á Útnesinu og náttúruundur þjóðgarðsins skoðuð og saga svæðisins fléttuð inn í leiðsögnina. Nánari upplýsingar: gudrun@hellnar.is eða 435-6810
Skipuleggjum ferðir fyrir hópa og einstaklinga – bókum í snjósleðaferðir á Jökulinn, eyjaferðir frá Stykkishólmi, hvalaskoðun frá Ólafsvík, hestaferðir í Staðarsveit, o.m.fl. Nánari upplýsingar: gudrun@hellnar.is eða 435-6810
Við vinnum eftir ákveðinni umhverfisstefnu og erum aðilar að vottunarsamtökunum Green Globe 21 . Í fyrsta lið umhverfisstefnunnar segir: ”Við sýnum náttúrunni fulla virðingu, svo og öllum sýnilegum og ósýnilegum íbúum hennar.”
Við göngum vel um náttúruna og stefnum að því að skilja alla staði eftir í betra ásigkomulagi en þeir voru í er við komum að þeim. Litlir hópar, góð umgengni, virðing við náttúruna!
Ef þú ert að skipuleggja hvataferð, óvissuferð, starfsmannaferðalag eða bara huggulega helgi með maka/vini hafðu þá samband og við hjálpum þér að setja saman ógleymanlega ferð um einhverja helstu náttúruperlu Íslands – Snæfellsbæ ...þar sem Jökulinn ber við loft... Nánari upplýsingar: gudrun@hellnar.is eða 435-6810