Randburg.com -> Iceland -> Tourism -> Outdoor living
Bláa Lónið
IS-240 Grindavik
Iceland

Sími. 420 8800
Fax + 354 420 8801

Tölvupóstur

Heimasíða
Blue Lagoon - Iceland

Germany



Danish



English



Japanese

Bláa Lónið – heilsulind

Bláa Lónið – heilsulind er staðsett á Reykjanesskaganum. Samsetning Blue Lagoon jarðsjávarins og lífríki hans gerir Bláa lónið að einstöku náttúruundri. Á árunum í kringum 1980 fóru menn að baða sig í lóninu sér til ánægju og heilsubótar og hafa vinsældir þess vaxið með ári hverju.

Blue Lagoon jarðsjórinn er tekinn beint úr borholum af allt að 2000 m dýpi og leiddur í lögn að heilsulindinni þar sem gestir njóta þess að slaka á í hlýju lóninu meðan virku efni jarðsjávarins: steinefni, kísill og þörungar dekra við líkama og sál.

Nudd og spa meðferðir

Blue Lagoon nudd og spa meðferðir fara fram í Bláa Lóninu, undir berum himni og eru byggðar á hinum einstöku virku efnum Bláa lónsins.

Lagoon Bar

Lagoon Bar þjónar baðgestum og býður létta hressingu, svo sem drykki, ís, ávexti og samlokur sem hægt er að kaupa með aðgangsarmbandinu og greiða við brottför. Á annarri hæð er hvíldarsvæði með þægilegum bekkjum og fallegu útsýni.

Blue Café

Blue Café býður stórkostlegt útsýni yfir lónið og þægilegt andrúmsloft. Í boði eru léttar, fljótlegar veitingar eins og súpur, salöt, baquette og mjólkurvörur. Á Blue Café er frí, þráðlaus nettenging.

Veitingastaðurinn Lava

Veitingastaðurinn Lava er byggður inn í hraunið sem umlykur Bláa lónið. Einn veggur staðarins er náttúrulegur steinveggur en hinir eru háir glerveggir með útsýni yfir Bláa lónið. Hvort sem um er að ræða léttan hádegisverð eða góðan kvöldverð hafa matreiðslumenn veitingarstaðarins sett saman spennandi matseðil þar sem lögð er áhersla á að bjóða einungis upp á ferskt íslenskt hráefni. Í Bláa lóninu hafa verið haldnar veislur, árshátíðir, ráðstefnur og ýmsar aðrar uppákomur. Veitingastaðurinn tekur 300 manns í sitjandi veislu en 600 í standandi veislu.

Fundarsalir

Ósnortið náttúrulegt umhverfi, fallegir fundarsalir sem búnir eru sérhönnuðum, hágæða fundahúsgögnum og persónuleg þjónusta gerir fundi í Bláa Lóninu – heilsulind og Eldborg að aðlaðandi kosti. Fundarsalur heilsulindar rúmar allt að 100 fundargesti en salirnir þrír í Eldborg, kynningar- og móttökuhúsnæði Hitaveitu Suðurnesja í Svartsengi taka allt að 400 manns.

Blue Lagoon húðvörur

Blue Lagoon húðvörurnar eru unnar úr virkum efnum Blue Lagoon jarðsjávarins og gera okkur kleift að njóta einstakra eiginleika hans hvar og hvenær sem er. Fjölbreytt úrval Blue Lagoon húðvara fyrir bæði andlit og líkama er fáanlegt sem gerir notendum mögulegt að skapa sína eigin heilsulindarupplifun – heima við. Fara í netverslun

Blue Lagoon psoriasismeðferð

Blue Lagoon psoriasismeðferðin er einstök náttúrleg meðferð sem byggir fyrst og fremst á böðun í Blue Lagoon jarðsjó sem þekktur er fyrir lækningamátt og virk efni: steinefni, kísil og þörunga. Einstakt náttúrlegt umhverfi, ferskt loft, hreint vatn og Blue Lagoon húðvörur eru einnig mikilvægir þættir meðferðarinnar.

Bláa Lónið – heilsulind er opin alla daga

10.00 – 20.00 (1. sept – 14. maí)
09.00 – 21.00 (15. maí – 31. ágúst)

Blue Lagoon Spa og Hreyfing í Reykjavík

Í Blue Lagoon Spa í Reykjavík er hægt að dekra við líkamann og endurnæra sál í þægilegu umhverfi. Eimböð, gufur og heitir pottar, m.a. með hreinum jarðsjó í slakandi andrúmslofti hjápa gestum að finna aukna hugarró vitandi það að spa upplifuninn byggir á náttúruvænni orku og aðferðum. Fjölbreyttar meðferðir eru í boði svo sem snyrtimeðferðir fyrir andlit og líkama, nudd og spa-meðferðir.

BLUE LAGOON Geothermal Spa

Nudd og spa meðferðir

Falleg umgjörð, sérstök stemning og glæsilegt útsýni yfir lónið

BLUE LAGOON húðvörur

BLUE LAGOON psoriasismeðferð

BLUE LAGOON geothermal skin care

line

· Agriculture · Commerce & Services · Culture & Arts · Education · Entertainment ·
· Fisheries · Health · Industries · News & Media · Public Authorities ·
· Recreation & Sports · Shopping · Shipping & Transport · Tourism ·

· Home · Search · About Randburg ·

Copyright © randburg.com - All rights reserved.

Randburg Is Your Path to The Future of Information